Ungt fólk, geðheilbrigði og atvinnulífið.

Skýrt ákall um að setja geðheilbrigði í forgang hefur nýverið lyft þessum mikilvægu málum upp í umræðunni. Óhugnanleg tölfræði í málaflokknum liggur fyrir. Samt virðast stjórnvöld láta þessi mál sér í léttu rúmi liggja. Við höfum heyrt fögur fyrirheit stjórnvalda um stóraukna geðheilbrigðisþjónustu en hver er staðan? Miðar þessum málum raunverulega eitthvað áfram?

Sterk félagasamtök

Gríðarlega mörg öflug samtök vinna markvisst að því að vekja athygli á geðheilbrigðismálum og er ungt fólk í einhverjum tilvikum í fararbroddi fyrir slíkum herferðum. Má nefna til dæmis Geðhjálp sem nýlega stóð fyrir áberandi herferð um áskorun til stjórnvalda og samfélagsins að setja geðheilsu í forgang. Þá efla önnur félög fræðslu um geðheilbrigði, geðraskanir og úrræði, t.d. Geðfræðslufélagið Hugrún, sem stofnað var af nemendum Háskóla Íslands.

Verkefnið er gríðarlega stórt, enda er einnig lagt upp með því að auka samfélagslega vitund um geðheilbrigðismál í heild. Verkefni sem stjórnvöld ættu að sjá hag sinn í að styrkja, jafnvel í samvinnu við félagasamtök eða þá með beinum stuðningi við þau. Leggja þarf áherslu á forvarnir og standa þarf við loforð um stóraukna geðheilbrigðisþjónustu og innleiðingu geðræktar í skólakerfið.

Atvinnuleysisáhrifin

Staðan í dag veldur því að við verðum að gjalda varhug við þróun atvinnuleysis í hópi unga fólksins. Atvinnuleysi unga fólksins er verulegt áhyggjuefni, en mest var atvinnuleysi í hópnum 25-29 ára árið 2020, samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun.

Grípa þarf til markvissari aðgerða til uppbyggingar á atvinnutækifærum svo unga fólkið ílengist ekki í atvinnuleysinu, því langvarandi atvinnuleysi getur vissulega dregið úr krafti ungamenna. Andleg líðan ungmenna líður fyrir aðgerðaleysi. Tækifæri stjórnvalda til að efla atvinnulíf eru mörg, til að mynda almennar skattalækkanir og einfaldara regluverk fyrirtækja.

Fjöldi ungra á örorku

Fjölgun skráðra ungra öryrkja veldur því að hér þarf að nema staðar og skoða hvað veldur. Stór hluti unga fólksins á örorku er í þeirri stöðu vegna geðrænna vandamála. Við þekkjum því oft hvað veldur en erum ekki að sinna forvarnarstarfi með þeim hætti að árangur náist af. Við erum ekki að grípa þessa einstaklinga nógu snemma til að koma þeim til aðstoðar. Þar þurfum við að gera betur.

Vandinn sem hér er nefndur er tvíþættur og málaflokkurinn óþrjótandi. Ungt fólk skortir atvinnutækifæri sem reynir mjög á andlega líðan. Kerfið er ekki að ná að grípa ungt fólk með geðræn vandamál til að sporna gegn aukningu ungra öryrkja.

Bregðast þarf við vandanum hið snarasta. Óbreytt ástand mun valda verulegum vandamálum seinna meir og mun reynast samfélaginu ofvaxið ef stjórnvöld grípa ekki inn í með markvissum aðgerðum. Fjárhagslegur og félagslegur ávinningur af því að grípa til aðgerða hlýtur að vera mikilsverður.