Karlarnir sjá bara um þetta

Ég vil búa í opnu og frjálslyndu samfélagi sem leggur áherslu á frelsi og jafnrétti.

Ein af hinum eilífðar áskorunum unga fólksins er hvernig skal fara með eigið fé. Þetta er ekki vandamál né umræða sem er ný af nálinni. En hvers vegna nær hún aldrei lengra? Þróun menntakerfisins verður að vera í takt við samfélagið og áskoranir þess.

Fjármálin flækjast fyrir mörgum. Það er ekki öllum einfalt að reka eigið fyrirtæki á Íslandi, þrátt fyrir að vera harðduglegt fólk með mikinn metnað. Kerfið á það nefnilega til að flækjast líka fyrir. En einstaklingum er líka ekki kennt að fara með eigið fé. Við þurfum að byrja á því að kenna grunnatriði í fjármálum á miðstigi í grunnskólum og aðstoða svo einstaklinga í því að byggja ofan á þá þekkingu.

Fjármálalæsi eykur jöfn tækifæri

Ef allir einstaklingar fá tækifæri til að sitja við sama borð og fá sömu menntun og þjálfun hlýtur það að vera undir þeim komið hvernig útkoman verður. Uppbygging og tryggð aðgengi að menntakerfinu er besta leiðin til að tryggja öllum jöfn tækifæri án þess að loforð um jafna útkomu fylgir.

Með öðrum orðum þá eigum við að hlúa vel að unga fólkinu okkar til að það eigi meiri möguleika á betri framtíð. Við getum notað kennslustundirnar í skólakerfinu á svo markvissari máta og náð betur til einstaklinga. Einstaklingar eru jafn fjölbreyttir og þeir eru margir, en skólakerfið er ennþá mjög svo kassalaga.

Fjármálalæsi eykur jafnrétti kynjanna

Samkvæmt hinum ýmsu greiningum og rannsóknum þá fara konur ekki ennþá með jafn mikinn hluta fés og karlar. Konur eru í minnihluta í framkvæmdastjórastöðum og í verulegum minnihluta í kauphöllinni. Ef stelpur fá markvissa þjálfun í að fara með eigið fé eykst jafnrétti. Ef við stuðlum að viðhorfsbreytingu gagnvart kynjaðri umræðu um verðbréfamarkaðinn, sem virðist einskorðast við stráka, getum við aukið möguleika þeirra kvenna sem leggja fjármálageirann fyrir sig.

Stelpur eru í meirihluta nemenda í háskóla, samt taka þær ennþá frekar lengra fæðingarorlof og sitja í minnihluta í stjórnum fyrirtækja. Einhversstaðar er þröskuldurinn og við þurfum að leita leiða til að jafna hann við jörðu. Kveikjum áhuga stúlkna á fjármálum snemma og kyndum undir stjórnunarhæfileika þeirra í skólakerfinu!

Ungt fólk vill læra um peninga

Þetta er borðleggjandi mál. Við heyrum unga fólkið okkar berjast hvað mest fyrir aukinni fræðslu og forvarnir innan skólakerfisins. Hlustum á unga fólkið og gefum þeim tækifæri til að hafa áhrif.

Það á að taka því fagnandi þegar ný kynslóð gefur kost á sér í stjórnmálum til að hafa áhrif. Það er merki um að ungt fólk hafi trú á því að á það sé hlustað og að það geti komið í gegn breytingum á samfélaginu. Það er ekki útlit stjórnmálamanna sem skiptir máli en eina leiðin til að breyta stjórnmálunum og færa þau til nútímans er að nýtt fólk með nýjar hugmyndir og ný vinnubrögð gefi kost á sér.

Ég vil auka frelsi og jafnrétti í samfélaginu með því að koma fjármálalæsi markvisst inn í skólakerfið og endurskoða aðalnámskrá grunnskólanna með áskoranir samfélagsins í huga!